Rétt svör:

1. Dale Ellis
2. Tim Hardaway, Mitch Richmond og Chris Mullin. Spiluðu fyrir Golden State Warriors og þetta tríó var kallað Run TMC.
3. Grant Hill
4. Jim Jackson
5. Brian Shaw
6. Tracy McGrady og Kobe Bryant
7. David Robinson
8. Tímabilið 1993-1994
9. Alex English
10. Glen Rice

Það tóku 8 manns þátt og 3 þeirra voru með allt rétt. Þeir eru olisteini, Benzari og sporti. Þeir fá því allir 10 stig, en olisteini svaraði fyrstur þeirra. Þetta er einfalt, ef 3 svara öllu rétt þá eru 3 sigurvegarar.
Sumir voru í smá vandræðum með spurningu 2, sennilega því að þar var spurt um nokkur atriði en spurningin sjálf var ekki erfið.

Xzibit var með 2 klaufalegar fljótfærnisvillur í léttum spurningum, en ég ætla bara að draga af honum 1 heilan.

Fólk, þessir 8, var almennt í smá erfiðleikum með spurningu 1, 2 og 8. Spurning 8, sem var um tímabil, var kannski ekki sniðug því sumir voru með þetta á hreinu en rugluðu saman ári eða gleymdu að nefna árið. Spurning 5 og 6 voru báðar pínuruglingslegar, en spurning 5 þótti ekki erfið, bara smá villur í henni sem voru leiðréttar fljótlegar.


Spurningar 3, 4, 5, 6, 7 og 10 þóttu greinilega auðveldastar, sérstaklega spurning 3, um Grant Hill.

Fyrir hvert rétt svar er gefið 1. Síðan er gefið 0,5 fyrir að vera með eitthvað rétt. Til dæmis í spurningu 2, ef einhver svaraði bara 2 atriði rétt af 3 þá fær hann 0,5 og sama er að segja um 1 atriði rétt. Það er reyndar frekar ósanngjarnt, en þá verður meiri spenna. Fyrir hvert rangt svar er síðan gefið ekkert stig.

Úrslitin í Getraun 1 er því:

1-3. olisteini, Benzari og sporti 10
4-5. Goat og JJBanks 9.5
6. Xzibit 9
7. Barney 8.5
8. Iverson 2

Staðan eftir Getraun 1 er þessi:

1-3. olisteini, Benzari og sporti 1

Þessu síðari stigatafla er aðalstigataflan en þessi fyrri er bara eins og úrslit úr fyrstu umferð. Ég ætla að hafa stigaskorunina svona, þá geta þeir sem tóku ekki þátt í getraun 1 tekið þátt í síðari getraunum.

Hvað finnst ykkur annars um það??

Getraun 2 verður síðan sennilega eftir 1-2 vikur. Hún verður kannski bara með jafn mörgum spurningum og nokkrum mjög erfiðum spurningum sem eiga að skera úr hver vinnur. Síðan verða líka 2-3 auðveldar spurningar sem allir ættu að geta svarað. Síðan ætla ég ekki að spyrja um mörg atriði í spurningum, í mesta lagi verður spurt um 2 atriði eða 2 leikmenn eða eitthvað álíka.
Jafnvel verður líka ein mjög erfið bónusspurning með lítilli vísbendingu. Það verða allaveganna enginn vettlingatök í næstu getraun.