Miðherjinn tröllvaxni Shaquille O´Neal, sem yfirgaf háskóla sinn Louisiana State University einu ári áður en hann útskrifaðist til að spila í NBA-deildinni árið 1992, hefur loksins klárað öll próf og mun útskrifast með pomp og prakt á föstudaginn. Shaq gaf móður sinni loforð, þegar hann hætti skólanum, um að hann myndi klára skólann og þótt það hafi tekið átta ár hefur hann nú staðið við sitt. “Ég hefði aldrei getað trúað því hversu erfitt þetta var,” sagði O´Neal. Vegna útskriftarinnar mun Shaq missa af leik Los Angeles Lakers og Vancouver Grizzlies á föstudaginn en forráðamenn félagisns veittu honum góðfúslega leyfi til að vera viðstaddur útskriftina.