Shaq að giftast Leikmaður L.A Lakers , þrefalldur NBA meistari , 9 sinnum í stjörnuliði NBA, rappari og leikari giftist á dögunum kærustu sinni til þriggja ára Shaunie Nelson á The Beverly Hills Hotel.
“Brúðkaupið var mjög fallegt,” sagði frændi hanns O'Neals , Michael Parris í símaviðtali. “Það var afskaplega hefbundið”. Það var líka mjög leynilegt. Til þess að halda fréttamönnum og fólki frá var ekki talað mikið um brúðkaupið og margir gestir fengu mjög stuttan fyrirvara , og mjög seint upplýsingar um tíma og stað.

Þau hjónin eiga tvo syni saman, og eiga von á öðrum litlum strák næstkomandi maí. O'Neal á líka 6 ára dóttir úr fyrri sambandi.

Já það er allt að gerast hjá O'Neal þessa dagana en hann má ekki alveg gleyma sér í öllum látunum því að útlitið hjá Lakers er ekki gott í deildinni en þeir eru í 6 sæti í kyrrahafsriðlinum með 11 sigra og 19 töp sem er ekkert til þess að vera stolltir með en þeir þurfa heldur betur að taka sig á ef að þeir ætla sér í úrslitakeppnina.