NBA-liðið Washington Wizards hefur fengið framherjann Tyrone Nesby frá Los Angeles Clippers. Í staðinn fékk Los Angeles Clippers framherjana Cherokee Parks og Obinna Ekezie frá Washington Wizards. Michael nokkur Jordan, stjórnandi Wizards, segist vera mjög ánægður með að fá Nesby og telur að hann muni styrkja liðið mikið í vetur.