Sælir.

Hvernig væri nú að hækka aðeins standardinn hérna. Ég veit ekki hvort þið gerið ykkur grein fyrir því, að það er fylgst með því sem þið látið frá ykkur. Það eru nokkrir hérna komnir í svörtu bókina, eða á leið í hana. eop, lerpur og bobo1, eru meðal þeirra. Annað hvort eru menn einfaldlega ekki með þroska til að hafa aðgang að huga.is, eða með svo lélega kímnigáfu. Ég veit ekki hvort er.
Það hefur verið farin sú leið hérna undanfarið að eyða sem fæstu, jafnvel þótt það sé eins og það sem er á korkunum núna, en ef menn fara ekki að skrifa eitthvað vitrænt, verður einfaldlega að breyta hvernig tekið er á málunum hérna á Ensku deildinni.

eggertsae