54 landsleikir á árinu Á árinu léku landslið Íslands samtals 54 leiki, en þar af voru 22 landsleikir kvennaliða. Landsleikjum karla fjölgaði talsvert frá árinu á undan, en árið 2000 voru þeir 24, miðað við 32 í ár. A-lið karla lék flesta leiki allra liða, eða ellefu, en U19 lið kvenna lék flesta leiki yngri liða, níu talsins.

Leikir karlaliða (alls):
2001: 32 (54)
2000: 24 (46)
1999: 30 (47)
1998: 29 (43)
1997: 33 (48)