Úrslit Framhaldsskólamótsins Um síðustu helgi fór framhaldsskólamótið í knattspyrnu fram á Ásvöllum og í Kaplakrika í Hafnarfirði. Í karlaflokki var það lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum sem sigraði lið Verslunarskóla Íslands 6-3 eftir framlengdan úrslitaleik, en Verslunarskólinn sigraði Fjölbrautaskólann við Ármúla í úrslitaleik kvennaflokks, 3-1.