ÍA Íslandsmeistari 2001 Skagamenn gerðu jafntefli í úrslitaleiknum við ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn 2-2. Með þessum úrslitum unnu ÍA deildina í ár. Það er ekki hægt að segja annað en að stórskemmtilegu Íslandsmóti hafi lokið með stórskemmtilegum leik. Mjög umdeild atvik varð undir lokin þegar Tómas Ingi skoraði fyrir ÍBV en markið var dæmt af. Síðan þetta gerðist hefur mikið verið rætt um þetta mál og eru menn ekki sáttir… en ekki er hægt að neita því að Skagamenn eru vel að titlinum komnir og vil ég nota tækifærið og óska þeim til hamingju. Þeir eiga líka leikmann ársins, Gunnlaug Jónsson, samkvæmt X-2001 kosningunni sem elwar sá um.