ÁRSTILNEFNINGAR 2001 Félagi minn kom með þá hugmynd að hafa svona árstilnefningar fyrir fótboltasumarið 2001 þar sem notendur Huga sendu inn tilnefningar og úrslitin yrðu síðan kynnt strax eftir tímabilið. Kosningin fer af stað eftir 16.umferð. Ég var að pæla í hvaða flokka væri hægt að velja og datt mér 12 flokkar í hug. Ef þið hafið einhverjar hugmyndir um fleiri flokka þá skrifið þið þær hér að neðan. En annars eru þetta flokkarnir sem mér datt í hug:

- 1. Þjálfari ársins
- 2. Leikmaður ársins
- 3. Efnilegasti leikmaðurinn
- 4. Markvörður ársins
- 5. Varnarmaður ársins
- 6. Miðjumaður ársins
- 7. Sóknarmaður ársins
- 8. Vitleysingur ársins
- 9. Mistök ársins
- 10. Stuðningsmenn ársins
- 11. Lið ársins
- 12. Dómari ársins


Úr þessu væri svo hægt að búa til lið ársins. Endilega tjáið ykkar skoðun, ég er opinn fyrir öllu… eða næstum öllu!