Boltaleik #3 lokið Þá er Boltaleik #3 lokið en Brynjarb sigraði þar. Þáttakan í þessum leik var mun meiri en í Boltaleikjunum á undan þannig að ég lít björtum augum á framtíðina. Brynjar svaraði aðeins einni spurningu vitlaust en það var spurningin um það hver hefði skemmtilegasta persónuleikann. Hann giskaði á Þórhall Dan en rétt svar var Sverrir Sverrisson. Næsti boltaleikur verður tileinkaður ÍA og ég vonast eftir svipaðri eða betri þáttöku í þeim leik. Ef þið hafið einhverjar hugmyndir um hvað sem er þá megið þið láta mig vita! - hress.