Hvar er Keflavík??? Ég hef fengið nokkrar fyrirspurnir um hvar Keflavík sé? Af hverju eru öll liðin í Símadeildinni með sér síðu á Huga nema Keflavík? Ég spurði Vefstjóra út í þetta mál og hann svaraði mér því að þegar ákveðið var að öll liðin fengju sitt pláss á Huganum voru liðin látin vita. Þau voru beðin um að senda samþykki sitt og myndir til að nota á síðunni. Svör bárust frá öllum liðunum… nema Keflavík! Búið er að reka á eftir þeim og ég veit ekki betur en að þeirra síða sé á leiðinni.

Kveðja
hress