Leikmannaskipti Já þá er Diego Forlan loksins á leið frá Man Utd. Hann er við það að skrifa undir samning við Villareal en United hafa þegar samþykkt tilboð Villareal. Hann verður líklega leikmaður Villareal um eða eftir helgi.

Xabi Alonso og Luis Garcia gengu til liðs við Liverpool nú fyrr í kvöld. Þeir gengu undir læknisskoðun í dag og skrifuðu hvor um sig undir 5 ára samning. Alonso kemur frá Real Sociedad en Garcia frá Barcelona. Þeir hafa báðir fengið leikmannanúmer sín úthlutuð en Garcia verður númer 10 í vetur en Alonso númer 14. Þeir munu þó væntanlega ekki spila sinn fyrsta leik fyrir félagið fyrr en um þar næstu helgi.

Greame Souness spurðist í vikunni fyrir um Alan Shearer hjá Newcastle en fréttir þess efnis að hann væri óánægður hjá félaginu höfðu heyrst og því ákvað Souness að hringja í Sir Bobby Robson. Honum var sagt að Shearer væri ekki á leið frá félaginu.