Jonathan Woodgate farinn til Real Já Real Madrid eru ekki hættir á leikmannamarkaðnum en þeir hafa fyrr í sumar keypt þá Walter Samuel, varnarmann Roma, og Michael Owen. Þeir hafa núna boðið 13.4 milljónir punda í Jonathan Woodgate, varnarmann Newcastle United. Newcastle hafa þegar samþykkt tilboðið og talið er að Woodgate geti jafnvel orðið leikmaður Real fyrir eða um helgina.

Þessar fréttir koma eins og þruma úr heiðskýru lofti en það voru ekki margir sem vissu um áhuga Real á leikmanninum.

Ljóst er að Woodgate mun skilja eftir sig stórt gat í vörn í Newcastle.