Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur gefið það til kynna að bæði Darren Fletcher og Paul Scholes muni spila í leiknum um Samfélagsskjöldinn gegn Arsenal. Leikurinn fer á Þúsaldarvellinum í Cardiff og má búast við að leikvangurinn verði stútfullur af áhorfendum.

Ruud van Nistelrooy er nýjasta viðbóð United manna á langan meiðslalista en fyrir á honum eru Ole Gunnar Solskjær, Kléberson, Liam Miller og svo eru Gabriel Heinze og Cristiano Ronaldo ekki leikhæfir þar sem þeir eru að fara að spila á Ólympíuleikunum og svo er Rio Ferdinand, eins og allir vita, í leikbanni.