Þetta er eitthvað sem allir stuðningsmenn Manchester United hafa óttast, það er, að Ruud van Nistelrooy meiðist. Hollendingurinn þjáist af kviðsliti og á að senda hann undir hnífinn á allra næstu dögum. Þessi meiðsli opna tækifæri fyrir Alan Smith og Diego Forlán og verður fróðlegt að sjá hvernig Sir Alex Ferguson leysir þetta.

Það er ekki vitað með vissu hversu lengi hann verður frá en getgátur eru uppi um mánuð og vissulega vonum við að það sé stutt í þennan frábæra leikmann.