Núna er orðið ljóst hvaða lið munu leika í undanúrslitum VISA bikarsins, en þau eru.

KA:
KA menn unnu ÍBV 3-0 eftir vítaspyrnukeppni. Sándor Matus varði allar spyrnur ÍBV manna og tryggði því KA mönnum sigurinn.

Keflavík:
Þórarinn Kristinsson skoraði sigurmarkið í 1-0 sigri á Fylkismönnum.

FH:
Hafnfirðingarnir tóku KR menn í bakaríið í Frostaskjóli í gær. Leikurinn endaði 3-1 með mörkum frá Jónasi Grana Garðarssyni, Emil Hallfreðssyni, Kristjáni Erni Sigurðssyni sem skoraði sjálfsmark og svo skoraði Sölvi Davíðsson mark KR-inga.

HK:
Kópavogsbúarnir komu rækilega á óvart og unnu Valsmenn 1-0 með margi frá Herði Má Magnússyni, frábær afgreiðsla þar eftir að hann lék á markmann Valsara.