Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, er í þeirri von um að geta keypt Michael Carrick, miðjumann West Ham, fyrir 2 milljónir punda - en það yrði metfjárhæð fyrir leikmann hjá Portsmouth.

Talið er ólíklegt að West Ham samþykki þessa upphæð enda er þessi leikmaður frábær og lykilmaður í liði West Ham.