Ryan Giggs hefur náð samkomulagi við Manchester United um nýjan fimm ára samning. Þessi samningur þýðir að Giggs verður hjá félaginu að minnsta kosti þar til hann er 33 ára.
Giggs segist öfunda samherja sína hjá Man. Utd. vegan þess að þeir hafa allir spilað á stórmóti með landsliði og langar hann umfram allt annað gera það líka! Hann getur samt sjálfum sér um kennt þar sem hann valdi Wales fram yfir England á sínum tíma þegar hann gat valið fyrir hvort landið hann vildi spila!