Úrslitin urðu eftir bókinni um helgina og Parma unnu Bari,4-0, og það var Di Vaio sem setti öll mörkin. Það kom greinilega ekki að sök þó að Milosevic væri ekki með.
Giggs segist öfunda samherja sína hjá Man. Utd. vegan þess að þeir hafa allir spilað á stórmóti með landsliði og langar hann umfram allt annað gera það líka! Hann getur samt sjálfum sér um kennt þar sem hann valdi Wales fram yfir England á sínum tíma þegar hann gat valið fyrir hvort landið hann vildi spila!