Enska undrið Theo Walcott Tók leikmenn Liverpool hreinlega í kennslustund í fyrradag.

Brunaði eins og nýr McLaren F1 frá eigin vítateig, framhjá fjórum ryðguðum Lödum og alla leið inn fyrir teig andstæðinga áður en hann renndi boltanum snyrtilega til Adebayors sem skoraði af öryggi.

Ein besta rispan sem sést hefur í knattspyrnuleik fyrr og síðar.