Íslenskur Futsalbolti Þessi mynd er frá fyrsta opinbera Futsal-leiknum á Íslandi þar sem Fram og Fylkir áttust við.
Á myndinni sjást fyrirliðar liðanna eigast við, Framarinn Steinar Þór Guðgeirsson er á fljúgandi siglingu með boltann og Fylkismaðurinn Sigurður Helgi Harðarson reynir að verjast honum.

Takið eftir stærð boltans, en hann er minni en meistaraflokkur spilar með utanhúss. Boltinn er af stærð 4 en er jafn þungur bolta af stærð 5, sem gerir það að verkum að hann skoppar um 30% minna.

Myndin er tekin af vef KSÍ, http://www.ksi.is.
Kveðja,