gerrard með beran bossan á crouch Steven Gerrard finnst greinilega bráðsniðugt að Peter Crouch hefur ekki enn skorað á tímabilinu og skoraði á hann í smáleik á æfingu. Það er enskur málsháttur sem er á þá leið að “you couldn't hit a cow's backside with a banjo!” Gerrard vildi sannreyna það og beraði á sér afturendann og tók sér stöðu á marklínunni á einu markanna á Melwood. Hann skoraði á Crouch að hitta rassinn á sér með boltanum og það kom engum á óvart að Crouch hitti ekki! Eins og sést á myndinni réði Cissé sér ekki fyrir kæti.

Nú er að vona að Crouch fari að skora og sannarlega gott hjá fyrirliðanum að losa um taugar hans á þennan hátt. Jahá!
I g0t c00k13$