Símadeildin Tómas Ingi Tómasson (31) hefur gengið frá samningi við ÍBV út þetta tímabil. Tómas Ingi er mikill liðsstyrkur fyrir Eyjamenn sem vantar bit í sóknarleik sinn. Hann hefur leikið með AGF í Danmörku frá haustinu 1998 en var ekki inni í framtíðaráætlunum þjálfara liðsins.