KR-ingar tóku á móti Þór í dag og unnu þann leik 5:0 en það hefði ekki dugað til nema að Fylkir gerði jafntefli eða tapaði sem þeir gerðu 0:2 á móti ÍA. Þannig að KR-ingar eru íslandsmeistarar þetta árið. Veigar Páll skoraði tvö mörk eins og Sigurvin Ólafsson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson átti svo eitt markið. Við óskum KR-ingum til hamingju með titilinn þrátt fyrir harða baráttu Fylkismanna.