Victoria og David Beckham eignuðust í morgun (1.sept) annan son sinn. Þau eiga þegar einn son sem heitir Brooklyn sem er þriggja ára. Yngri sonurinn mun heita Romeo. Romeo kom í heiminn á Portlandi í sjúkrahúsinu í London.
,, Að eignast barn er eitt það mikilvægasta í lífinu," sagði David Beckham við fréttamenn fyrir utan sjúkrahúsið. Einnig bætti hann við að yngri sonurinn væri mjög líkur Brooklyn.