Þetta stendur á liverpool.is
Það var ekki á fáum fjölmiðlum viðtalið við Graeme Souness, þar sem hann setti yfir 20 milljón punda verðmiða á Damien Duff í gær. Hann meira að segja gaf til kynna að hann væri mikið meira virði.
Engu að síður eru öruggar heimildir fyrir því að stjórn Blackburn sé búið að gefa forráðamönnum Liverpool þau svör að þeir séu tilbúnir að láta hann fara fyrir 15 milljónir punda. Núna er því boltinn algjörlega í höndum Liverpool FC og bara spurningin um það hvort þeir séu tilbúnir að borga þessa miklu upphæð.
15 milljónir punda eru nefninlega gríðarlega há upphæð, þrátt fyrir að hún sýnist ekki vera það miðað við allan Rio Ferdinand sirkusinn. Engu að síður væri þetta metupphæð sem Liverpool hefði nokkru sinni greitt fyrir leikmann og er hægt að telja það á annarri hendi hversu margir leikmenn hafi farið á hærri upphæð á Englandi.
Það er líka alveg ljóst að treyju númer 11 hefur ekki verið úthlutað til leikmanns ennþá og því myndi hún væntanlega sóma sér vel á Íranum spræka.