Hinn tæplega tvítugi miðjumaður Rohan Ricketts fór á frjálsri sölu yfir til Tottenham um helgina. Hann hefur einungis spilað einn leik með aðalliði Arsenal, það var í deildarbikarnum gegn Man. Utd. þegar hann kom inná sem varamaður. Ricketts var orðinn langþreyttur á því að fá engin tækifæri hjá Arsenal og fór því til Spurs þar sem samkeppnin er ekki jafn hörð. Ricketts var hluti af sigursælum unglingaliðum Arsenal sem unnu FA Youth Cup tvö ár í röð, hann hefur spilað fyrir hönd Englands í unglingalandsliðunum.