Auðun Helgason, Rúnar Kristinsson og Arnar Grétarsson sem leika allir með Lokeren voru allir í byrjunarliðinu í gær og áttu þeir Rúnar og Auðun mjög góðan leik þegar þeir unnu 2. deildar liðið Bergen í Belgísku bikarkeppninni. 4. Íslendingurinn Arnar Viðarsson kom svo inná í seinni hálfleik og stóð sig prýðilega.