Ferguson ráðleggur dómaranum.
Alex Ferguson stjóri Manchester United, biðst vægðar hjá dómaranum sem kemur til með að dæma leik MU og Bayer Leverkusen. Roy Keane, Laurent Blanc, Nicky Butt og Ruud van Nistelrooy eru allir með gult spjald á bakinu og ef þeir fá annað í leiknum á miðvikudaginn missa þeir af úrslitaleiknum í Meistaradeildinni, það er að segja ef þeir ná svo langt. Ferguson sagði að það væri mikið í húfi fyrir þessa leikmenn og hann vonar að dómarinn skilji það. Ef Roy Keane missir af leiknum, þá verður það í annað skipti sem hann missir af úrslitaleik í Meistaradeildinni vegna spjalda, síðast var það árið 1999.


byrjar hann…… alltaf að reyna að nota einhverja sálfræði á einhvern leik! svindlari frá helvíti!!!!!!!!!