Stjóri Huddersfield Town, Lou Macari, segir að næsti sunnudagur verði hálf undarlegur fyrir sig og sína fjölskyldu. Huddersfield leikur þá fyrri umspilsleik sinn gegn Brentford en þennan dag verða liðin þrjú ár frá því að sonur stjórans, Jonathan, framdi sjálfsmorð. “Sunnudagurinn verður mjög undarlegur fyrir mig og fjölskyldu mína. Tilfinningalega sveiflast þetta öfganna á milli því ég mun fara í kirkjugarðinn um morguninn og svo á leikinn í Huddersfield síðdegis. Fjölskyldan mun minnast þessa og þetta er enn afar erfitt. Kannski er gott að ég get svo einbeitt mér að leiknum.”