Glenn Hoddle hefur áhuga á að kaupa Marian Pahars í sumar. Pahars hefur staðið sig vel með Dýrlingunum en sagt er að launakröfur kappans séu til vandræða. Gordon Strachan hefur hins vegar áhuga á að fá framherjann Sergei Rebrov frá Spurs en hann er metinn á um 7 milljónir punda. Strachan getur ekki borgað svo mikið en kannski er þá bara hægt að skipta. Rebrov kostaði Spurs 11 milljónir punda árið 2000 en Dýrlingar greiddu aðeins 800.000 pund fyrir Pahars í febrúar 1999.