Gerard Houllier ætlar sér að keppa við Manchester United um varnarkappann Lilian Thuram hjá Juventus. Thuram ýjaði í síðustu viku að því að hann hefði áhuga á að fara til United en um helgina var svo greint frá því að Liverpool hefði augastað á honum. Talið er að Juve sé til í að selja hann fyrir um 15 milljónir punda. Thuram hefur sagt að hann vilji fá að spila í miðvarðarstöðu og ólíklegt verður að telja að Houllier ætli að skipta Sami Hyypia eða Stephane Henchoz út þar sem þeir hafa leikið mjög vel í vetur. Á hinn bóginn vill Alex fá Thuram til að taka við af landa sínum Laurent Blanc.