Þú getur séð David Beckham framan á forsíðum tímarita og dagblaða, í sjónvarpsauglýsingum og nánast hvar sem er. Og svo er það nýjasta ,,Go Go Beckham“ tölvuleikurinn. Í honum berst Beckham við skrímsli og hefur betur með aukaspyrnunum sínum. Tölvuleikja Beckham lítur frekar út eins og sonur hans Brooklyn en er þó með nýjustu hárgreiðslu kappans. Í leiknum berst Beckham svo við fígúru sem ber nafnið ,,Mr. Woe”, hann hatar knattspyrnuíþróttina og stelur fótboltum. Beckham segir leikinn vera frábæran, hann hafi alltaf dreymt um að vera ofurhetjan sem persóna hans er í leiknum. Hann segir þó að það hljóti að vera skrítið fyrir fólk að spila leik þar sem hann er mun yngri en hann er í raun og veru.
Glory Glory Man Utd