Arsenal vinnur bikarinn.
Arsenal fær búningaklefann sem snýr í norður á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff er þeir leika bikarúrslitaleikinn við Chelsea í maí. Þetta kom í ljós í dag þegar peningi var kastað. Samtals hafa níu úrslitaleikir verið leiknir á vellinum og í öllum tilvikum vann liðið sem var í norðurklefanum. Í sárabætur var ákveðið að Chelsea fengi að leika í hvítum sokkum í leiknum, en Arsenal þarf að leika í rauðum.


——————————————————————————–