Er einhver pöbb búinn að staðfesta veitingaleyfi á meðan á HM stendur. Það þarf sérstakt leyfi til að afgreiða bjór fyrir klukkan 11 á daginn og gaman væri að heyra frá öðrum sem spenntir eru fyrir HM hvort þeir ætli bara að horfa á leikina eða hvort það verði húsnæði til að hýsa okkur.
Ef ekki verðum við (ef næg þátttaka fæst) að finna út stað fyrir alvöru aðdáendur til að hittast í hópum og horfa á leikina í góðu yfirlæti (bjór, samlokur, pizzur, whatever). Endilega látið vita hvernig ykkur líst á þetta eða hvort það verði opið á Ölveri eða eitthvað.
FORZA AZZURI