Danny Murphy og Michael Owen skoruðu sitt hvort markið á Anfield í kvöld þegar landslið Englands sigraði Paraguay með fjórum mörkum gegn engu. Steven Gerrard var valinn maður leiksins þrátt fyrir að hafa einungis spila fyrri hálfleikinn í leiknum. Hann og Michael Owen spiluðu fyrri hálfleikinn, en Murphy þann seinni. Mark Owen kom eftir aðeins 4 mínútur, og Murphy hafði aðeins verið inná í rúmar tvær mínútur þegar hann skoraði. Jamie Carragher lék síðustu 15 mínúturnar.