AC Milan þykir nú líklegast til að hreppa varnarmanninn Fabio Cannavaro sem virðist á förum frá Parma. Það hefur ekki gengið vel hjá Parma á tímabilinu og næsta víst er talið að það muni selja þennan 28 ára leikmann. Heyrst hefur að Milan vilji bjóða Parma miðjumanninn Massimo Donati og háa greiðslu að auki, tilboð sem hægt er að meta á um 33 milljónir punda. Juventus, Inter og Man United hafa öll verið orðuð við varnarmanninn en nú þykir Milan líklegast.