Er með til sölu neon græna Mercurial takkaskó frá Nike. Þeir eru nánast ónotaðir, fór í þá á eina æfingu og þeir voru engan veginn að gera sig fyrir mig. Var farinn úr þeim eftir korter og ekkert komið nálægt þeim síðan. Þeir eru í stærð 40,5 en það er aðal ástæðan fyrir afhverju þeir voru ekki að virka hjá mér (pössuðu ekki almennilega). Ég ætla setja á þá 12.000 kjéll en tekið skal fram að ég keypti þá í Intersport á 17 og eitthvað. Þannig að þetta eru kjarakaup fyrir öfluga athyglissjúklinga til að sprikla í í sumar ;) Annars bara endilega koma með tilboð.

http://img.frontur.com/album/thumbnail/127475/m/634110237322758000.jpg