Fiorentina er nánast fallið úr Serie A eftir 0-1 tap fyrir Torino í dag. Liðið er tíu stigum frá öruggu sæti þegar aðeins sex umferðir eru eftir af keppni. Það var Alessio Scarchilli sem tryggði Torino sigurinn.
Bologna sigraði Lecce í miklum markaleik. Gheorghe Popescu kom Lecce tvívegis yfir en Fabio Pecchia og Ricardo Cruz jöfnuðu fyrir Bologna. Úrúgvæinn Ernesto Chevanton kom Lecce í 3-2 en gamli vinstri fóturinn Giuseppe Signori jafnaði fyrir Bologna. Það var svo varnarjálkurinn Salvatore Fresi sem tryggði Bologna sigurinn.
AC Milan vann góðan útisigur á Piacenza. Serginho skoraði úr víti á 22. mínútu og það reyndist eina mark leiksins.
Luca Toni var hetja Brescia gegn Perugia. Toni gerði þrennu og Brescia komst úr fallsæti.
-maniggi irc nick-Hvar a netinu get eg downloadað adsl ??????????????????????????