Alessandro Nesta fyrirliði Lazio segist ekki vera á leið frá félaginu í sumar. Eins og við greindum frá í síðustu viku er Sergio Cragnotti með nýja fjárhagsáætlun á prjónunum og hefur heitið því að byggja upp öflugt lið. "Ég veit hvað forsetinn ætlar segja á þriðjudag (í dag) en ég mun ekki segja ykkur frá því. Það eina sem ég get sagt er að ég verð hér á næstu leiktíð, sagði Nesta. Honum lýst greinilega vel á áætlanir fosetans fyrir næstu leiktíð en hann vill fyrst ljúka þessu tímabili með sóma. Við verðum að fara að vinna leiki. Það er eina leiðin til að fá stuðningsmennina aftur með okkur. Þetta tímabil hefur verið hálf misheppnað en ég vil ekki vera með neinar afsakanir. Nú verðum við bara að ljúka tímabilinu eins vel og við getum.
-maniggi irc nick-Hvar a netinu get eg downloadað adsl ??????????????????????????