Sælir félagar, ég ætla hér að kynna nýja síðu sem kom í loftið í dag.

http://www.deildin.is er nýr vefur sem mun fjalla ítarlega um fréttir úr enska boltanum.

Hugmyndin á bak við vefinn er að koma með allar fréttir úr enska, hvort sem þær séu um Liverpool eða Burnley, eitthvað sem öðrum íslenskum miðlum hefur mistekist að gera.

Forsíðan sýnir allar nýjustu fréttirnar sem og blái dálkurinn hægra megin, en vinstra megin er svokallaður “floter” sem ætti að sjást í flestum upplausnum og hugmyndin á bak við hann er svipuð og hjá TEAMtalk, þ.e.a.s. hægt er að smella á liðið sitt og þá sjást einungis fréttirnar sem koma um það ákveðna lið.

Takmark okkar er að verða fyrsti áfangastaður netverja fyrir fréttir úr enska boltanum og öll gagnrýni er vel þegin.

Mbk,
Hallgrímur - deildin.is