Knattspyrnustjóri Rangers hefur sagt það að hann hyggist kaupa Mcallister frá Liverpool. Það hefur verið sagt á netinu að Mcallister færi í sumar til Glasgow á frjálsri sölu, þegar samningur hans við Liverpool rennur út.

Sjálfur segir knattspyrnustjórinn Mc Leish ekkert hafa gerst. Rangers menn töluðu við Mcallister um lán en ekkert gerðist í þeim málum. Ég hélt að Mcallister færi nú bráðlega að hætta en svo virðist ekki, en hann myndi nú varla gera samning við Rangers nema til eins árs. Mcallister verður 38 ára á þessu ári og það er algengt að knattspyrnumenn hætti á þessum aldri. En Mcallister hefur ekki fengið að spila mikið á þessari leiktíð svo mér þykir nú ekki ólýklegt að honum langi að fara. Reyndar hafa margir leikmenn verið orðaðir við Rangers að undanförnu.