Bolton var að næla sér í enn einn frakkan en hann heitir Mario Espartero og er í láni fram á vor en bolton hefur forkaupsrétt á honum þegar þeim tíma er lokið.
Espartero er fjórði leikmaður sem Bolton nælir sér í á síðustu þrem vikum en áður höfðu frakkarnir Youri Djorkaeff og Gerald Forchelet komið til bolton auk Stig Tofting.
Ég vona bara að þessir leikmenn eigi eftir að standa sig í ensku deildini enda vil ég að Bolton detti ekki niður í fyrstu deild því að hér er skemmtilegt lið á ferðini og allardyce er að gera góða hluti þótt að þeir séu ekki að spila frábærlega núna.