18 milljóna punda undrabarn

Tottenham hefur bæst í hóp liða sem hafa mikinn áhuga á að kaupa franskan undrastrák að nafni Djibril Cisse. Cisse sem skoraði tvö mörk fyrir U21 árs landslið Frakka gegn Belgíu í síðustu viku hefur skorað 17 mörk fyrir lið sitt, Auxerre í frönsku deildinni í vetur.

Cisse sem er aðeins tvítugur sóknarmaður er nú eftirsóttur meðal liða eins og Liverpool, Manchester United og Arsenal. Tottenham menn hyggja hins vegar á að reyna að losa sig við Sergei Rebrov svo þeir eigi fyrir Cisse sem metinn er á 18 milljónir punda.

Copy og paste grein af Gras.is