Hvernig yrði svona draumalið ef þú ættir að velja?

Það mega bara vera leikmenn sem hafa spilað í Ensku Deildinni og aðeins má velja 11menn.

Mitt lið væri:

(Markmaður):

Peter Schmeichel, þessi maður var bara gullmoli í markinu.


(Varnarmenn):

Phil Jagielka, búinn að standa sig rosalega vel með Everton.

Rio Ferdinand, stendur “oftast” fyrir sínu en hann er rosalega harður í vörninni.

John Terry, hann stjórnar Chelsea vel og á skilið að vera hérna.


(Miðjumenn):

David Bechham, þessi maður stóð sig með prýði hjá Manchester United.

Cristiano Ronaldo, þótt hann láti sig detta og svona þá er þetta góður leikmaður og hann hefur sýnt það.

Steven Gerrard, ekki uppáhaldið mitt en þessi leikmaður stendur sig eins og hetja í Liverpool liðinu.

Mikel Arteta, án efa uppáhalds leikmaðurinn minn.


(Sóknarmenn):

Duncan Ferguson, sama hvað hann gerði þá var dæmt á hann brot, þessi maður var einn af skemmtilegustu spilurum í deildinni.

Wayne Rooney, þetta naut ólst upp hjá Everton og hann sýnir það með Manchester.

Eric Cantona, þessi maður spilaði svo góðann fótbolta þangað til hann missti sig en hann nær samt að festa sig í liðinu mínu.



Ég nota 3-4-3 leikaðferðina.

Veit að ég nota Manchester og Everton leikmenn kannski smá mikið en þetta lið væri ég til í að sjá spila.

Hvaða leikmenn myndir þú velja og hvernig myndiru stilla þeim upp.

Engin skítakomment á Everton eða Manchester.