29.01.2002

Talið er að ólíklegt sé að Steven Gerrard verði búinn að ná sér í tíma fyrir leikinn gegn Leicester sem fram fer á Anfield annað kvöld.

Phil Thompson viðurkenndi það í dag að miðjumaðurinn snjalli eigi í erfiðleikum með að hreyfa höfuðið eftir að hafa tognað á hálsi í leiknum gegn Arsenal á sunnudaginn.

“Stevie var virkilega óheppinn og við þurfum að fara varlega í sakirnar með hann næstu daga. Þetta er að skána og hann ætti að verða búinn að ná sér að fullu um helgina þegar við heimsækjum Leeds.”

Thompson hafði þó mun betri fréttir að færa af Nicolas Anelka sem meiddist líka í leiknum gegn Arsenal. Hann meiddist á öxl og þurfti að skipta honum út í hálfleik. Hann hefur náð skjótum bata og ætti að verða klár í slaginn annað kvöld.