Hvað getur maður sagt? Eiga þeir þetta virkilega skilið? Ég bara get ekki séð það. Útúr báðum viðureignunum áttu Standard þetta meira skilið. Vítið sem þeir klúðruðu og boltinn sem sást ekki hvort var inni eða ekki.

Svo var sp. um víti í framlengingu en mitt mat var að El-Zhat tók boltann með sér með hendinni þannig að dæma átti að það fyrst.

Eins manns varnarmistök orsök þess að við sjáum Liverpool í Meistaradeildinni í ár. Spurning hvort þeir hefðu samt ekki tekið þetta hvort sem er í vító með betri markmann og vítaskyttur.

En sigurvegarar kvöldsins eru Anorthorsis Famagusta. Smáliðið frá Kýpur sem slá út grísku risana Olympiacos. Ef þeir geta farið svona langt að þá ætti íslenskt lið líka að geta það enda fleiri atvinnumenn í KR, FH og Val en þar á bæ.
“There's no such thing as stupid questions, just stupid people.”