Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, hefur valið John Terry hjá Chelsea sem nýjan fyrirliða. Terry er 27 ára en hann tekur við fyrirliðabandinu af David Beckham sem bar það á heimsmeistaramótinu 2006.

Valið um fyrirliðann stóð milli Terry og Rio Ferdinand. Terry á 44 landsleiki að baki en hann var fyrirliði undir stjórn Steve McClaren þegar Englandi mistókst að komast á Evrópumótið.

Capello hefur prófað nokkra fyrirliða í þeim vináttulandsleikjum sem hann hefur stýrt Englandi í. Nú er það þó ljóst að Terry verður fyrirliði til frambúðar.



tekið af visi.is

Bætt við 19. ágúst 2008 - 14:31
tekið af visir.is*
kv.