Zinedine Zidane þarf að losa sig við nokkur kíló á næstu
dögum þar sem næringarfræðingar Real Madrid telja hann of
þykkan. Zidda hefur verið ráðlagt að þamba vatn og borða svo
aðallega ávexti, grænmeti og fiskmeti. Talið er að hann borði of
mikið af pasta en það lærði hann hjá Juventus.
Frakkinn snjalli reyndist aðeins of þungur þegar hann kom úr
jólaleyfinu og nú verður hann að taka sig á í mataræðinu. Það er
eins gott fyrir hann að hlýða því, þar sem Real á marga
mikilvæga leiki framundan og svo styttist auðvitað í HM.