Ég man þá tíð þegar Man Utd gekk ekki sem best og voru bara rétt um miðja deild. Á sama tíma voru Liverpool menn á góðu róli og gortuðu sig af því að vera besta lið í heimi - Já einmitt, fyrir að vinna tvo lítilsmetna bikara á Englandi og Evrópukeppni félagsliða, m.ö.o. liða sem voru svona u.þ.b. í 3.-6. sæti í deildunum heima fyrir, þvílíkur árangur… - og gerðu lítið annað en að skíta yfir okkur United mennina. Margir töluðu um það að nú væri stórveldið hrunið, Ferguson genginn af göflunum og fleira þar fram eftir götunum. Sjálfur verð ég að játa að ég var farinn að missa trúna á Ferguson, en aldrei missti ég þó trúna á liðið mitt.

Og hvað erum við að sjá í dag? United hefur unnið hvern leikinn á fætur öðrum og eru núna sestir á toppinn, já ég sagði toppinn! Hver hefði trúað því fyrir 2-3 mánuðum síðan? Ekki Poolarnar a.m.k. sem núna sitja í 5. sæti… Reyndar aðeins þremur stigum á eftir United, en ekki er mjög langt síðan að Liverpool sat á toppnum einum 12 eða 13 stigum á undan United.

Ég held að þetta sýni okkur bara eitt, United liðið er einfaldlega það besta, hvað svo sem aðrir reyna að segja og skíta yfir United, þá eru þeir einfaldlega bestir. Liðið er það stærsta og besta í enska boltanum og kemur alltaf aftur. Stórveldið er langt frá því að hrynja, það er rétt að hrökkva í gang.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _